Mynd:Blik1967 7.jpg
Upphafleg skrá (1.724 × 1.156 mynddílar, skráarstærð: 351 KB, MIME-gerð: image/jpeg)
Þessi mynd er tekin 14. október 1892 sunnan við Landakirkju. Brúðhjónin Kristján Ingimundarson og Sigurbjörg Sigurðardóttir eru á leið úr kirkju, eftir að Séra Oddgeir Guðmundsen hefur gift þau. Þau eiga þá heima í Helgahjalli. Síðan voru þau hjón kennd við heimilið sitt Klöpp við Strandveg. – Á myndinni þekkist þetta fólk: - Frá vinstri: Jón sýslumaður Magnússon, síðar forsætisráðherra, stendur upp við kirkjuvegginn með harðan hatt á höfði. Hann gerðist sýslumaður í Vestmannaeyjum 3. júlí 1891. Næstur er Þorsteinn læknir Jónsson í frakka með harðan hatt og alskegg. Manninn með loðhúfuna og alskeggið þekkjum við ekki. En við vinstri hlið læknisins stendur Sigurður Sveinsson í Nýborg. Fremst á myndinni eru brúðhjónin Kristján og Sigurbjörg. Litli drengurinn er Sigurjón Kristjánsson sonur brúðhjónanna. Hann var fæddur 6. ágúst 1886 og þess vegna rúmlega 6 ára, þegar „pabbi og mamma giftu sig". Maðurinn með stafinn i hendi, í frakka með loðhúfu á höfði er sóknarpresturinn séra Oddgeir. - Brúðurin klæðist brúðarklæðum Ragnhildar Þórarinsdóttur, konu Gísla verzlunarstjóra á Tanganum Engilbertssonar. Þau klæði eru nú geymd í Byggðarsafni Vestmannaeyja. Við setjum þessa mynd hér til þess að minna á hvernig suðurhlið Landakirkju leit út á þeim árum, þegar feðgarnir Einar Sigurðsson og Árni sonar hans voru meðhjálparar.
Myndin byrtist í blik árið 1967 á blaðsíðu 7 í greininni: II. Árni Meðhjálpari Einarsson
Breytingaskrá skjals
Smelltu á dagsetningu eða tímasetningu til að sjá hvernig hún leit þá út.
Dagsetning/Tími | Smámynd | Víddir | Notandi | Athugasemd | |
---|---|---|---|---|---|
núverandi | 12. júlí 2007 kl. 08:38 | 1.724 × 1.156 (351 KB) | Dadi (spjall | framlög) | Mynd á blaðsíðu 7 úr blik 1967 {{Blik}} |
Þú getur ekki yfirskrifað þessa skrá.
Skráartenglar
Eftirfarandi 3 síður nota þessa skrá: