Hjálmholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. janúar 2013 kl. 14:36 eftir Þórunn (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. janúar 2013 kl. 14:36 eftir Þórunn (spjall | framlög) (Bætt við byggingarári húss og íbúum)
Fara í flakk Fara í leit
Hjálmholt
Íbúar í Hjálmholti
Hjónin í Hjálmholti, Hulda og Óli

Húsið Hjálmholt stóð við Urðarveg 34. Það var reist af Ingibergi Hannessyni á árunum 1910-12 og stækkað 1964. Ingibergur var ævinlega nefndur Bergur í Hjálmholti og þótti hafa mjög róttækar stjórnmálaskoðanir.

Hjálmholt var tvíbýlishús. Í eystri hlutanum bjuggu Ingibergur Hannesson og Guðjónína Pálsdóttir og síðar seinni kona hans Sigurlaug Þorsteinsdóttir. og þegar gaus bjuggu í eystri hlutanum Ólafur, sonur Ingibergs, ásamt konu sinni Eyrúnu Huldu Marinósdóttur og syni þeirra Viðari.

Í vestari hlutanum bjuggu Guðlaugur Kristjánsson og Gíslína Gísladóttir, Jón Tómasson og Steinunn Árnadóttir þegar gaus bjuggu Ólöf Sigvaldadóttir og Sigurlaug Þorsteinsdóttir.


Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.
  • Húsin undir hrauninu, haust 2012.