Guðmundur Guðlaugsson frá Sólbrekku

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. október 2022 kl. 11:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. október 2022 kl. 11:46 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Guðlaugsson fæddist 12. júlí 1885 og lést 2. júlí 1967. Hann bjó á Faxastíg 21 í nær hálfan fimmta tug, í húsi sem nefnist Sólbrekka. Lífsförunautur Guðmundar var Una Jónsdóttir skáldkona sem lést 29. febrúar 1960. Guðmundur var hæglátur maður og hjálpsemin við aðra var honum í blóð borin.

Árið 1921 kom Guðmundur á vertíð til Vestmannaeyja til að freista gæfunnar. Þar vann hann við aðgerð og keypti fæði hjá Unu Jónsdóttur eins og svo margir aðrir vertíðarmenn í Eyjum á þeim tíma. Tveimur árum seinna fluttist hann til hennar og þar bjuggu þau síðan saman ógift í 37 ár, þar til Una lést.

Guðmundur var jafnan kenndur við konu sína og kallaður Unu-Gvendur.


Heimildir