Sunnuhóll
![](/images/thumb/d/db/Sunnuholl.jpg/400px-Sunnuholl.jpg)
![](/images/thumb/4/41/Str%C3%B6nd.jpg/300px-Str%C3%B6nd.jpg)
Húsið Sunnuhóll við Vestmannabraut 26 var reist árið 1935. Húsið byggði Óskar Kárason múrarameistari og byggingarfulltrúi í Vestmannaeyjum, neðri hæðina árið 1935 og efri hæðina 1949-50. Var Sunnuhóllinn heimili fjölskyldunnar til ársins 1971. Eftir andlát Óskars þann 2. maí 1970, var húsið selt í ágúst 1971 og fluttu kona hans og dóttir þá til Reykjavíkur í september það sama ár.
Núverandi eigendur hússins reka þar gistiheimilið Sunnuhól.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
Heimildir
- Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.