Hilmisgata 4
Húsið sem stóð við Hilmisgötu 4 var byggt árið 1928, en endurbætt 1951. Húsið var notað sem slökkvistöð, lögreglustöð, bifreiðaeftirlit og dómssalur. Húsið brann árið 1988 og í kjölfari þess rifið.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Ríkissjóður
- Vestmannaeyjabær
Árið 2009 var byggt nýtt hús á reitnum þar sem lögreglustöðin hafði verið. Á neðri hæð er verslunar- og þjónusturými. Verslunar- og raftækjavinnustofan Geisli flutti þá í húsnæðið af Flötum. Árið 2023 var rekstur Geisla seldur og keyptu Halldór Ingi Guðnason og Sigrún Arna Gunnarsdóttir reksturinn af Þórarni Sigurðssyni og Guðrúnu Jóhannsdóttur. Reksturinn er í þrennu lagi; rafverkstæðið Geisli, raftækjaverslunin Heimaraf og gjafavöruversunin Heimadecor.
Á efri hæð nýja hússins eru 6 íbúðir.
Heimildir
- Hilmisgata. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.