Magnús Magnússon (Felli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2007 kl. 10:35 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2007 kl. 10:35 eftir Frosti (spjall | framlög) (breytt skv. ábendingum Guðna Grímssonar)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Magnússon


Magnús Magnússon á Felli var fæddur 8.júlí 1873 og lést 25.september 1940. Kona Magnúsar var Guðrún Þórðardóttir. Þau eignuðust tvær dætur, Guðbjörgu f. 11.08.1901 d. 5.5.1982 og Önnu Sigríði fædda 12.02.1908 og dána 11.08.1923.

Magnús kom til Vestmannaeyja um aldamótin 1900 og var formaður þar með opið skip í nokkur ár en 1907 keypti hann Kristbjörgu og var formaður á henni allt til 1926. Magnús var talinn í fremstu röð formanna. Einnig var hann bjargveiðimaður mikill.


Heimildir

  • Jón Sigurðsson. Þegar slysið varð á mb. Portlandi. Sjómannablað Vestmannaeyja. 1963.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.


Fara þarf yfir neðangreindar upplýsingar.... Magnús Magnússon, i var fæddur 8. júlí 1870 á Rangárvöllum og lést 25. september 1940. Kona Magnúsar var Kristín Jónsdóttir. Þau eignuðust einn son, Magnús. Kristín bjó síðar í Hólshúsi.