Guðmundur Nikulásson
Guðmundur Nikulásson bóndi fæddist 1770 í Nýjabæ í Landbroti.
Foreldrar hans Ingibjörg Árnadóttir húsfreyja, f. 1738?, og Nikulás Jóhannsson bóndi.
Börn Ingibjargar og Nikuláss:
1. Guðmundur Nikulásson, f. 1770.
2. Bjarni Nikulásson, f. 1775.
3. Þórunn Nikulásdóttir, f. 1776.
4. Jón Nikulásson, f. 1779.
Guðmundur var með foreldrum sínum í Þykkvabæ 1783, fór með þeim til Eyja 1784, var vinnumaðurr á Bergþórshvoli 1801, bóndi á Voðmúlastöðum 1807-1812, í Suður-Voðmúlastaðahjáleigu 1812-1818, í Efri-Úlfstaðahjáleigu 1818-1827.
Guðmundur eignaðist barn með Guðrúnu Jónsdóttur 1795.
Þau Guðrún Þórðardóttir giftu sig, eignuðust eitt barn.
I. Barnsmóðir Guðmundar var Guðrún Jónsdóttir, f. 1764.
Barn þeirra:
1. Jón Guðmundsson, f. 1795.
II. Kona Guðmundar var Guðrún Þórðardóttir, f. 1713.
Barn þeirra:
2. Sigurður Guðmundsson, f. 1801.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.