Aagot Fougner Vilhjálmsson
Aagot Fougner Vilhjálmsson, f. Johansen, fæddist 7. apríl 1900 og lést 15. október 1995.
Foreldrar hennar Rolf Johansen kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Reyðarfirði, síðar skrifstofumaður í Reykjavík, f. 14. janúar 1874, d. 3. maí 1950, og Kittý Johansen, f. Øverland, f. 23. apríl 1876, d. 26. febrúar 1930.
Þau Árni giftu sig, eignuðust ellefu börn. Þau bjuggu í Eyjum frá júlí 1922 til júní 1923.
I. Maður Aagot var Árni Vilhjálmsson læknir, f. 23. júní 1894, d. 9. apríl 1977.
Börn þeirra:
1. Snorri Árnason lögfræðingur, sýslufulltrúi á Selfossi, f. 10. júlí 1921, d. 21. desember 1972.
2. Kjartan Árnason héraðslæknir á Höfn í Hornafirði, f. 8. desember 1922 á Þorvaldseyri, d. 21. maí 1978.
3. Árni Árnason sjómaður, tæknifræðingur, framkvæmdastjóri á Akureyri, bæjarfulltrúi, f. 26. nóvember 1924, d. 26. mars 2002.
4. Kristín Sigríður Árnadóttir kaupmaður á Seltjarnarnesi, f. 30. juní 1926, d. 20. júlí 2017.
5. Sigrún Árnadóttir cand. phil., húsmæðrakennari, ritstjóri og þýðandi í Reykjavík, f. 6. september 1927, d. 9. júlí 2021.
6. Valborg Árnadóttir hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 12. febrúar 1930, d. 12. janúar 2018.
7. Vilhjálmur Árnason járnsmiður í Kópavogi, f. 20. apríl 1933, d. 22. júní 2017.
8. Aagot Árnadóttir fulltrúi í Mosfellsbæ, f. 7. apríl 1935.
9. Rolf Fougner Árnason bæjartæknifræðingur á Blönduósi, f. 3. nóvember 1937, d. 3. júní 2014.
10. Aðalbjörg Árnadóttir hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 17. janúar 1939, d. 6. janúar 2015.
11. Þórólfur Árnason verslunarmaður í Bessastaðahreppi, f. 9. nóvember 1941.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.