Brynjúlfur Sigfússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2007 kl. 15:06 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2007 kl. 15:06 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Systkinin frá Vestri-Löndum. Standandi frá vinstri: Brynjúlfur og Árni. Sitjandi: Leifur og Ragnheiður Stefanía.

Brynjúlfur Sigfússon, tónskáld, fæddist 1. mars 1885 og lést 27. febrúar 1951. Hannvar mjög virkur í tónlistarlífinu í Vestmannaeyjum á fyrri hluta 20. aldar sem organisti í Landakirkju, stjórnandi og stofnandi fyrstu lúðrasveitar í Vestmannaeyjum og síðan kórstjóri Vestmannakórs, sem svo var nefndur, en kórinn var blandaður kór úr Eyjum og starfaði á þessum árum. Brynjúlfur var stjórnandi lúðrasveitarinnar frá stofnun hennar árið 1904 til ársins 1916.