Jens Kristinn Elíasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. september 2025 kl. 11:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. september 2025 kl. 11:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jens Kristinn Elíasson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Jens Kristinn Elíasson vélstjóri fæddist 13. september 1985.
Foreldrar hans Sigríður Gísladóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 12. janúar 1964, og maður hennar Elías Vigfús Jensson sjómaður, stýrimaður, f. 16. ágúst 1954.

Börn Sigríðar og Elíasar:
1. Gísli Elíasson, f. 29. september 1981.
2. Jens Kristinn Elíasson, f. 13. september 1985.
3. Aníta Elíasdóttir, f. 23. maí 1991.

Þau Marsibil giftu sig, eignuðust tvö börn, en misstu annað þeirra nýfætt. Þau búa við Kirkjubæjarbraut 12.

I. Kona Jens Kristins er Marsibil Sara Pálmadóttir úr Eyjafjarðarsveit, húsfreyja, f. 30. september 1987. Foreldrar hennar Helga Sigríður Árnadóttir, f. 26. september 1956, og Jón Pálmi Gíslason, f. 14. mars 1932, d. 10. maí 2023.
Börn þeirra:
1. Elías Vigfús Jensson, f. 26. nóvember 2012.
2. Steinunn Eva Jensdóttir, f. 23. nóvember 2016, d. 2. desember 2016.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.