Oddgeirshólar (Hólagötu)
Húsið Oddgeirshólar stendur við Hólagötu 40. Friðfinnur Finnsson, kafari og kaupmaður í Eyjabúð, byggði húsið og færði nafnið yfir á það frá því húsi er hann bjó í lengst af og stendur nokkru ofar og sunnar, við Höfðaveg. Það hús var síðan nefnt Stuðlaberg. Á jarðhæð Oddgeirshóla var lengi vel starfrækt matvöruverslun en nú eru þar til húsa Tannlæknastofa Heimis og nuddstofa. Á efri hæð hússins býr Kristmann Karlsson kaupmaður ásamt konu sinni, Kristínu Bergsdóttur.
Heimildir
- Hólagata. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.