Logi Garðar Fells Ingólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. september 2024 kl. 10:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. september 2024 kl. 10:08 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Logi Garðar Fells Ingólfsson, húsasmiður fæddist 26. janúar 1973 í Rvk.
Foreldrar hans Ingólfur Sigurmundsson, húsasmíðameistari, f. 24. desember 1939, d. 20. ágúst 2013, og kona hans Emilía Jónasdóttir, húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 12. mars 1935.

Börn Emilíu og Ingólfs:
1. Guðmundur Bergur Ingólfsson iðnverkamaður, f. 22. maí 1962. Fyrrum sambýliskona hans Karítas Markúsdóttir.
2. Örnólfur Örvar Ingólfsson viðskiptafræðingur, verslunarmaður, f. 14. október 1964. Fyrrum kona hans Bergþóra Sigurðardóttir. Kona hans Hulda Harðardóttir.
3. Úlfhildur Ösp Ingólfsdóttir húsfreyja, f. 8. desember 1967. Maður hennar Steinar Kr. Ómarsson.
4. Erlingur Geir Ingólfsson, f. 23. september 1970. Hann býr í Svíþjóð.
5. Logi Garðar Fells Ingólfsson verkamaður, f. 26. janúar 1973. Kona hans Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir.
6. Sólrún Ingólfsdóttir fiskiðnaðarkona í Eyjum, f. 25. júlí 1975, ógift.

Þau Guðrún Sigríður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Boðaslóð 2.

I. Kona Loga Garðars er Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir, húsfreyja, f. 12. júlí 1979. Foreldrar hennar Þorsteinn Finnbogason, pípulagningameistari, f. 4. apríl 1959, og kona hans Hulda Berglind Skarphéðinsdóttir, f. 27. september 1959.
Börn þeirra:
1. [Hafsteinn Ingi Logason]], f. 8. ágúst 2006 í Rvk.
2. Vigdís Linda Logadóttir, f. 2. ágúst 2012 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.