Ólafur Eggertsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. september 2024 kl. 14:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. september 2024 kl. 14:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ólafur Eggertsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Eggertsson, sjómaður, stýrimaður fæddist 15. febrúar 1948 og lést 8. ágúst 2024.
Foreldrar hans voru Eggert Gunnarsson skipasmíðameistari, f. 4. september 1922, d. 4. janúar 1991, og kona hans Jóna Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1927, d. 12. mars 2010.

Börn Jónu Guðrúnar og Eggerts:
1. Ólafur stýrimaður, 15. febrúar 1948, d. 8. ágúst 2024.
2. Svava húsfreyja, 13. mars 1952, d. 9. júní 2005.
3. Gunnar skipasmíðameistari, f. 11. nóvember 1954.
4. Guðfinna húsfreyja og bankastarfsmaður, 14. desember 1955.
5. Sigurlaug húsfreyja og leikskólakennari, f. 22. júní 1961.
6. Óskar vélavörður, f. 11 apríl 1966, d. 16. apríl 2000.

Ólafur varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum í Eyjum og lauk tveggja vetra skipstjórnarnámi í Stýrimannaskólanum í Eyjum 1968. Hann var stýrimaður á bátum og skipum.
Ólafur var ókvæntur.
Hann lést 2024.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.