Dóra Hanna Sigmarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. ágúst 2024 kl. 10:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. ágúst 2024 kl. 10:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Dóra Hanna Sigmarsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Dóra Hanna Sigmarsdóttir, húsfreyja, grunnskólakennari, bankastarfsmaður fæddist 7. maí 1974 í Rvk.
Foreldrar hennar Sigmar Magnússon, skipstjóri, f. 25. september 1948, og kona hans Dóra Bergs Sigmundsdóttir, húsfreyja, fiskverkakona, verslunarmaður, ræstitæknir, f. 6. nóvember 1944, d. 27. janúar 2018.

Börn Dóru og Sigmars:
1. Hlynur Sigmarsson rekur fisksölufyrirtæki, f. 27. febrúar 1969. Fyrrum kona hans Svetlana Luchyk. Kona hans Soukaina Nigrou.
2. Dóra Hanna Sigmarsdóttir húsfreyja, kennari, f. 7. maí 1974. Maður hennar Sighvatur Jónsson.
3. Heiðrún Björk Sigmarsdóttir íþróttafræðingur, sérkennari í Reykjanesbæ, f. 28. mars 1977, trúlofuð Vilbergi Eiríkssyni.
4. Andrés Bergs Sigmarsson verkamaður, f. 11. desember 1980.

Þau Sighvatur giftu sig 1997, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Reykjanesbæ.

I. Maður Dóru Hönnu, (3. maí 1997), er Sighvatur Jónsson, tölvunarfræðingur, fjölmiðlamaður, heimildarmyndagerðarmaður, f. 1. október 1975. Foreldrar hans Jón Sighvatsson, f. 25. maí 1946, og Sigurborg Erna Jónsdóttir, f. 18. nóvember 1943.
Börn þeirra:
1. Gabríel Sighvatsson, f. 28. september 1998 í Rvk.
2. Elmar Elí Sighvatsson, f. 4. júní 2005 í Danmörku.
3. Embla Dís Sighvatsdóttir, f. 11. ágúst 2010 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.