Elísabet Ingvarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júlí 2024 kl. 13:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júlí 2024 kl. 13:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Elísabet Ingvarsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Elísabet Ingvarsdóttir, húsfreyja fæddist 7. október 1956 í Eyjum.
Foreldrar hennar Ingvar Gunnlaugsson, frá Gjábakka, sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, f. 13. mars 1930, d. 15. júní 2008, og kona hans Ingibjörg Helga Guðmundsdóttir, frá Hurðarbaki í Flóa, húsfreyja, f. 3. október 1933.

Börn Helgu og Ingvars:
1. Elísabet Ingvarsdóttir, f. 7. október 1956. Maður hennar Guðmundur Þórarinn Óskarsson.
2. Guðmundur Kristinn Ingvarsson, f. 16. maí 1959. Kona hans Elínborg Gunnarsdóttir.
3. Þröstur Ingvarsson, f. 12. febrúar 1963. Kona hans Guðbjörg Hrefna Bjarnadóttir.
4. Svanur Ingvarsson, f. 12. febrúar 1963. Kona hans María Óladóttir.
5. Þuríður Ingvarsdóttir, f. 19. janúar 1972. Sambúðarmaður hennar Einar Guðmundsson.

Þau Guðmundur giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa á Selfossi.

I. Maður Elísabetar er Guðmundur Þórarinn Óskarsson, trésmíðameistari, f. 15. desember 1952. Foreldrar hans Óskar Sigurþór Ólafsson, bóndi, f. 26. ágúst 1908, d. 10. júní 1990, og kona hans Lovísa Ingvarsdóttir, f. 20. júlí 1912, d. 26. janúar 2006.
Börn þeirra:
1. Ingvar Guðmundsson, f. 22. febrúar 1976.
2. Helga Guðmundsdóttir, f. 12. febrúar 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.