Kristín Ögmundsdóttir (Nýjabæ)
[[]]Kristín Ögmundsdóttir húsfreyja fæddist 1789 í Jórvík í Álftaveri og lézt 6. júní 1842 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Ögmundur Björnsson, líklega bóndi á Hvoli í Mýrdal, f. um 1751, d. í Eyjum 16. febrúar 1793 og barnsmóðir hans Ingigerður Árnadóttir ljósmóðir, f. um 1764.
Stjúpfaðir Kristínar var Jón Einarsson, f. um 1774.
Kristín var barn í Dölum 1801, gift kona í Nýjabæ 1816.
Maki I, barnsfaðir: Jón Nikulásson bóndi og ekkjumaður á
Búastöðum, sem neitaði.
Barn:
Guðríður, f. 20. des. 1807, d. 27. des. s. ár.
Maki II, barnsfaðir: Sigurður Magnússon á Miðhúsum.
Barn:
Sigurður, f. 20. okt. 1814, er ekki á mt. 1816.
Maki III (gift 22. júní 1816): Magnús Guðlaugsson bóndi og hreppstjóri í Nýjabæ, f. um 1793 á Götum í Mýrdal, drukknaði 5. marz 1834.
For.: Guðlaugur bóndi á Götum 1801, f. 1757, d. 7. apríl 1828 í Pétursey í Mýrdal, Jóns, f. 1719, Sigurðssonar og fyrri kona Guðlaugs, Sigríður húsmóðir á Götum, d. 29. okt. 1797 á Götum, Jónsdóttir, Eiríkssonar.
Börn:
- Sigríður, f. 5. des. 1816, d. 15. marz 1819.
- Guðmundur, f. 28. nóv. 1818, d. 30. nóv. s. ár.
- Magnús, f. 26. febr. 1819, d. 4. marz s. ár.
- Þorbjörg, f. 16. nóvember 1819, d. 1. des. 1819.
- Ingigerður, f. 9. júlí 1821, d. 14. júlí s. ár.
- Jón, f. 19. júní 1822, er ekki á mt. 1845.
- Magnús, f. 20. júlí 1823, d. í ágúst s. ár.
- Guðmundur, f. 16. sept. 1824, d. 23. sept. s. ár.
- Sigurður, f. 23. ágúst 1829, d. 2. sept. s. ár.
- Kristján, f. 20. júlí 1830, d. 26. febr. 1865.
Maki IV: Jón Árnason bóndi í Nýjabæ, f. 1807 í Kerlingardal í Mýrdal.
Foreldrar hans voru Árni bóndi í Kerlingardal, f. 1764, d. 11. marz 1836, Klemensson, Hallgrímssonar og konu Klemensar, Vilborgar Runólfsdóttur. Móðir Jóns og kona Árna var Helga húsfreyja, f. 1779, Þorsteins bónda, síðast í Kerlingardal, Steingrímssonar og konu Þorsteins, Guðríðar Bjarnadóttur, Nikulássonar.
Við giftingu var Kristín 47 ára, en Jón 28 ára. Hann var ekkil í Nýjabæ 1845 með Kristjáni stjúpsyni sínum.
Þau Jón voru barnlaus.
Heimildir
- Björn Magnússon: Vestur-Skaftfellingar. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur, 1970-1973.
- Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
- Prestþjónustubækur.