Jón Berg Halldórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. desember 2006 kl. 18:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. desember 2006 kl. 18:48 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Berg Halldórsson skipstjóri, síðar verkstjóri á Keflavíkurflugvelli fæddist 1. júlí 1935 í Eyjum.
Kjörforeldrar hans voru Halldór Elías Halldórsson, f. 23. júlí 1902, d. 8. okt. 1975 og k.h. Sigríður Friðriksdóttir, f. 3. júlí 1908.
Foreldrar voru Jón Magnús Tómasson , f. 1896, d. 1977 og k.h. Kristín Björg Jónsdóttir, f. 1898, d. 1935.
Jón Berg lauk gagnfræðaprófi 1951, farmannaprófi 1958. Hann hóf sjómennsku sem matsveinn á Metu með Emil Andersen 1952. Varð hann síðar stýrimaður og skipstjóri, lengst var hann skipstjóri á Ísleifi IV., sem var í eigu dánarbús Ársæls Sveinssonar. Þegar búið var leyst upp 1975, hætti Jón Berg til sjós.
Fjölskyldan fluttist til höfuðborgarsvæðisins og settist að í Hafnarfirði.
Varð Jón Berg verkstjóri yfir viðhaldi flugskýla, flugbrautarljósa og tengdum verkefnum hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Því starfi gegndi hann í 30 ár. Lét af störfum 2005.
Maki (1959): Helga Sigurgeirsdóttir húsmóðir og sjúkrahússtarfsmaður, f. 11. nóv. 1936.
Foreldrar hennar voru Sigurgeir Guðjónsson trésmiður, f. 9. ágúst 1906, d. 9. september 1985, og k.h. Sigurbjörg Ólafsdóttir húsmóðir, f. 6. október 1907, d. 11. apríl 1998.
Börn þeirra Helgu eru:

  1. Halldór Berg iðnrekandi, f. 5. febrúar 1959.
  2. Sigurbjörg bókari, f. 1. marz 1961.
  3. Ólafur Þór pípulagningameistari, f. 6. nóvember 1962.

Barn Helgu og fóstursonur Jóns Bergs er

Guðmundur Meyvantsson sjómaður, f. 23. október 1955.

Heimildir:

  • Pers.
  • Jón Berg Halldórsson.
  • Skipstjóra og stýrimannatal.