Guðmundur Snædal Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. desember 2023 kl. 20:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. desember 2023 kl. 20:20 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Snædal Jónsson frá Reykjavík, skipstjóri fæddist 11. mars 1958.
Foreldrar hans voru Evert Jón Sigurvinsson bóndi, síðan hafnarverkamaður í Rvk, f. 26. september 1915, d. 16. apríl 1969, og síðari kona hans Helga Steinunn Hansen Guðmundsdóttir, f. 21. mars 1916, d. 1. ágúst 1987.

Bróðir Guðmundar - í Eyjum, var
Logi Snædal Jónsson skipstjóri, f. 21. júlí 1948.

Guðmundur var með foreldrum sínum í æsku, í Balboe-kampi og á Kleppsvegi 67.
Hann lauk skipstjórnarnámi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1980.
Guðmundur var sjómaður, stýrimaður og skipstjóri, var á Surtsey, háseti og stýrimaður, stýrimaður á Smáey, stýrimaður og skipstjóri á Sigurfara GK, síðan á Bylgjunni.
Guðmundur bjó á Foldahrauni 38A 1986, bjó með Helgu í Rvk og Garðabæ 1992-2005, býr nú á Búhamri 26.
Þau Helga giftu sig, eignuðust ekki börn saman.

I. Kona Guðmundar er Helga Guðbjörg Ágústsdóttir húsfreyja, f. 10. september 1951.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.