Oddsstaðir eystri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. október 2006 kl. 07:50 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. október 2006 kl. 07:50 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Mynd tekin 1937

Húsið Oddsstaðir eystri stóð á austanveðri Heimaey, vestur af Kirkjubæjum. Einar Vilhjálmsson trésmiður ættaður frá Þuríðarstöðum í Fljótsdal byggði húsið árið 1927 og bjó þar ásamt konu sinni Halldóru S. Sigurðardóttur frá Klömbru Austur-Eyjafjöllum, börn þeirra; Ingibjörg Þórstína, Sigurjón og Guðbjörg. Árið 1962, eignuðust húsið Jóel Guðmundsson frá Háagarði og Guðrún R. Pétursdóttir frá Kirkjubæ.

Húsið varð eldi að bráð, þegar hraunbomba lenti á því á fjórða degi eldgossins 1973.

Mynd tekin 25.01.1973
Mynd tekin 25.01.1973