Þórshamar (við Vestmannabraut)
Sjá Þórshamar við Vestmannabraut fyrir annað hús sem ber nafnið „Þórshamar“
Húsið Þórshamar stendur við Vestmannabraut 28. Þorsteinn Johnson frá Jómsborg byggði húsið sem var kallað Nýja bíó áður fyrr í daglegu tali. Margs kyns starfsemi var í húsinu, svo sem kvikmyndasýningar og skemmtanir, ásamt verksmiðjurekstri og prentsmiðju auk þess sem það var síðar meir notað sem geymsluskemma. Húsið hrundi í gosinu 1973 en var endurbyggt eftir gos og hýsir nú Hótel Þórshamar og veitingastaðinn Fjóluna.
Heimildir
- Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.