Þórshamar (við Vestmannabraut)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá Þórshamar við Vestmannabraut fyrir annað hús sem ber nafnið „Þórshamar


Nýja-Bíó
Hótel Þórshamar

Húsið Þórshamar stendur við Vestmannabraut 28. Þorsteinn Johnson frá Jómsborg byggði húsið sem var kallað Nýja bíó áður fyrr í daglegu tali. Margs kyns starfsemi var í húsinu, svo sem kvikmyndasýningar og skemmtanir, ásamt verksmiðjurekstri og prentsmiðju auk þess sem það var síðar meir notað sem geymsluskemma. Húsið hrundi í gosinu 1973 en var endurbyggt eftir gos (1975). Það hýsti Hótel Þórshamar og veitingastaðinn Fjóluna.

Húsið var endurbætt 1987.

Árið 2011 tók Magnús Bragason og Adda Jóhanna Sigurðardóttir við rekstri hótelsins og heitir hótelið nú Hótel Vestmannaeyjar. Samhliða reka þau gistiheimilin Hótel Mömmu og Sunnuhól.

Tenglar



Heimildir

  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.