Guðlaugur Þorsteinsson (Laugalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2007 kl. 09:12 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2007 kl. 09:12 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaugur Þorsteinsson, Laugalandi, fæddist 30. júlí 1889 og lést 23. júní 1970. Árið 1914 kom Guðlaugur til Eyja til að fara á sjó. Formennsku byrjaði hann 1921 á Litlu Unni, síðar með Skúla Fógeta og svo Svan.

Jafnhliða stundaði Guðlaugur trésmíðar. Var hann eftirsóttur og var af mörgum talinn mjög hæfileikaríkur trésmiður.

Guðlaugur fluttist til Reykjavíkur árið 1945 og stundaði þar trésmíði á meðan heilsa hans leyfði. Hann lést á heimili sínu, áttræður að aldri.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 2 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.