Lönd-vestri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2007 kl. 10:43 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2007 kl. 10:43 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Stóru-Lönd húsið til hægri. Hraungerði til vinstri.

Húsið Lönd-vestri stóð við Landagötu 11 var byggt árið 1909 af Friðriki Svipmundssyni. Einnig nefnt Stóru-Lönd. Friðrik, sem var mikill aflamaður og sjósóknari, var kvæntur Elínu Þorsteinsdóttur og voru bæði ættuð úr Mýrdalnum. Mikil reisn og myndarskapur þótti einkenna heimilið að Löndum. Húsið fór undir hraun 1973.


Heimildir