Hrefna Hálfdanardóttir
Hrefna Hálfdánardóttir frá Akureyri fæddist 17. ágúst 1904. Hún dó 8. júlí 1982, 77 ára. Þau Brynjólfur Einarsson giftust 27. janúar 1926 og áttu heima á Eskifirði til 1933, að þau fluttust til Vestmannaeyja. Faðir Hrefnu fór einnig þangað. Hann var Hálfdan Jónsson beykir, fæddur 18. júní 1874 í Odda á Mýrum í Hornafirði, dáinn 29. júní 1959, 85 ára.
Synir Hrefnu og Brynjólfs voru Hálfdan Brynjar og Gísli Hjálmar. Sonur Hrefnu og Ófeigs Eyjólfssonar sjómanns, f. 8. september 1899, d. 5. ágúst 1971, var Vilberg Lárusson frá Byggðarholti í Eskifirði, f. 23. ágúst 1923, d. 4. ágúst 1988. Hann var kjörbarn Lárusar Kjartanssonar frá Byggðarholti og Þorbjargar Jóhannsdóttur
Heimildir
- Morgunblaðið 11. febrúar 2008. Minning Soffíu Erlendsdóttur.
- Ættir Síðupresta eftir Björn Magnússon, bls 45.