Magnús Jónsson (Hlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. mars 2022 kl. 12:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. mars 2022 kl. 12:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Magnús Jónsson (Hlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Jónsson frá Hlíðarenda í Ölfusi, sjómaður, útgerðarmaður fæddist þar 4. maí 1889 og lést 9. ágúst 1922 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Jón Jónsson óðalsbóndi, bátsformaður, hreppstjóri, f. 7. ágúst 1850 á Stokkseyri, d. 10. apríl 1945, og kona hans Þórunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 19. júní 1861 í Laugardælasókn, d. 24. nóvember 1937.

Magnús var með foreldrum sínum á Hlíðarenda í æsku og enn 1910.
Hann var snemma í útvegi og sjósókn, var útvegsbóndi á Hjalla í Ölfusi, Stokkseyri og í Eyjum, flutti til Eyja með konu og tvö börn sín 1920, var húsmaður í Hlíð.
Hann lést 1922.

I. Kona Magnúsar var Guðrún Jónsdóttir frá Kúludalsá í Innri-Akraneshreppi, f. þar 6. apríl 1889, d. 4. nóvember 1955 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja, f. 31. ágúst 1915 á Hjalla í Ölfusi, d. 19. september 2003.
2. Magnús Magnússon, f. 25. júlí 1917, d. 9. maí 1922 í Hlíð.
3. Þórunn Magnúsdóttir húsfreyja, sagnfræðingur, kennari, skólastjóri, f. 12. desember 1920 í Hlíð, d. 24. desember 2008.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 26. september 2003. Minning Guðrúnar Magnúsdóttur.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.