Sigurður Oddsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2006 kl. 10:30 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2006 kl. 10:30 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Oddsson, Skuld, fæddist 28. mars 1880 á Krossi í Landeyjum og lést 10. maí 1945.

Árið 1900 fer Sigurður til Vestmannaeyja og er þá háseti á Bergþóru hjá Magnúsi í Dal en árið 1908 kaupir Sigurður Björg ásamt fleirum og er háseti á henni til 1910. Þá byrjar hann formennsku á Kapítólu. Tveimur árum síðar kaupir hann Baldur VE-24 og var formaður þar til 1923.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.