Björn Ívar Karlsson (læknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. júlí 2006 kl. 13:01 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2006 kl. 13:01 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Ívar Karlsson, var sjúkrahúslæknir á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum. Hann var fæddur í Vestmannaeyjum þann 24. apríl 1943. Foreldrar hans eru Karl O. Björnsson, bakarameistari og kona hans Guðrún Scheving. Stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1963 og cand. med. frá Háskóla Íslands vorið 1970.

Honum var veitt almennt lækningaleyfi þann 20. des. 1972. Þá starfaði hann sem heilsugæslulæknir og aðstoðarlæknir við Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum frá mars 1970 til júní 1971. Hann var aðstoðarlæknir (intern) hjá Hurkley Medical Center í Flint (Michigan) í Bandaríkjunum júlí 1971 til júní 1972. Þá stundaði hann sérnám í almennum skurðlækningum frá júlí 1972 til september 1975. Hann var yfirlæknir á FSI október til desember 1975 og yfirlæknir við handlækningadeild Sjúkrahússins í Vestmannaeyjum síðan 1975.

Hann kvæntist Sigríði Sigurjónsdóttir (dóttur Sigurjóns bifreiðarstjóra í Vestmannaeyjum og Önnu Þorkelsdóttur) og áttu þau eitt barn saman. Seinna kvæntist hann Helgu Jónsdóttur (dóttur Jóns Guðmundssonar, skipstjóra og Rósu Guðmundsdóttur, konu hans) og eiga þau tvö börn.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.