Brimberg
Húsið Brimberg stendur við Strandveg 37. Það var reist árið 1925. Árið 2006 búa í húsinu Gunnar Þorri Þorleifsson framhaldsskólakennari og Sigurjón Guðnason.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Ólafur Ástgeirsson og Kristín Jónsdóttir, síðari kona Guðrún Sigurðardóttir og sonur þeirra Kristinn Rúnar Ólafsson
- Runólfur Jóhannsson skipasmiður og Kristín Skaftadóttir
- Ólafur Símonarson og Jóhanna Bjarnadóttir
- Sigurjón Ólafsson og Þórunn Gústafsdóttir
Heimildir
- Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.