Sigurjón Ólafsson frá Litlabæ
(Endurbeint frá Sigurjón Ólafsson)

Sigurjón Ólafsson, Siggi í Bæ, fæddist 25. janúar 1918 og lést 14. ágúst 2005. Móðir hans var Kristín Jónsdóttir og faðir Ólafur Ástgeirsson, sem var þekktur bátasmiður í Eyjum. Þau bjuggu að Litlabæ í Vestmannaeyjum, en það var heimili afa hans og ömmu. Bróðir Sigurjóns var Ási í Bæ og Kristinn R. Ólafsson fréttaritari útvarpsins á Spáni er hálfbróðir hans. Fyrir gos bjó Sigurjón í húsinu Sólnesi við Landagötu. Seinni ár ævi sinnar bjó hann í Foldahrauni.
Kona Sigurjóns var Þórunn Gústafsdóttir og börn þeirra voru Óli, Sigrún og Marý.
Sigurjón var formaður.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Sigurjón:
- Sigurjón Ólafs sigur,
- sótt hefur dag sem nóttu
- sjávar í geiminn gráa,
- gniðar mót æstu liði.
- Hylfarið hleður Gylfa,
- hrotu þá tekur notin.
- Talfár er virður valinn,
- vinnur sá traust við kynni.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.