Gísli Þorvarðarson
Gísli Þorvarðarson var prestur að Ofanleiti frá 1628 til 1634 og svo aftur frá 1639 til 1660. Foreldrar hans voru Þorvarður Sæmundsson í Vestmannaeyjum og kona hans Guðrún Halldórsdóttir. Kona hans var Þorgerður Ólafsdóttir.
Gísli var prestur í Keldnaholti frá 1602 til 1622. Hann fékk svo Torfastaði árið 1622 og var þar til ársins 1628, en þá fékk hann Ofanleiti og gengdi því embætti til æviloka 1660.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.