Gústav Stefánsson (Bergholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2006 kl. 07:34 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2006 kl. 07:34 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Gústaf Stefánsson, Ási, var fæddur 22. ágúst 1898 og lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þann 24. janúar 1943. Foreldrar hans voru Stefán Gíslason og kona hans Sigríður Jónsdóttir frá Mandal.

Hann byrjaði snemma að stunda sjóinn á opnum báti með Ólafi Ástgeirssyni í Litla-Bæ. Árið 1923 tók hann við formennsku á bátnum Gústaf (9 tonn) sem faðir hans átti. Árið 1927 tekur Gústaf við formennsku á Braga.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 8 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.