Jóel Eyjólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:31 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:31 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jóel Eyjólfsson, Sælundi, var fæddur 3. október 1878 að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Eyjólfur Eiríksson og Jórunn Skúladóttir.

Jóel var formaður á Immanúel sem hann keypti ásamt fleirum. Eftir að hann lét af formennsku rak hann útgerð sína í fleiri ár.

Jóel var með bestu bjargfuglaveiðimönnum Vestmannaeyja og einnig góður sigmaður. Hann lést 28. desember 1945.


Heimildir

Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.