Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1954/ Hannes Jónsson hafnsögumaður
- Hann ungur horfði á hafið,
- því hugurinn bjó þar.
- Sá blika bárutrafið,
- er blátt og hvítt það var.
- Og bylgjur sá hann brotna
- og boðaföll um sund,
- sá hörku hafsins drottna,
- og hermenn kröftum þrotna.
- Það vakti víkings lund.
- Hann ungur horfði á hafið,
- Með öflugum æskuþrótti
- hann út í stríðið fór.
- Og glaður geyst fram sótti
- sem garpur hugumstór.
- Og aldinn jafnt sem ungur,
- í öllu starfi trúr,
- hann fór um klettaklungur,
- og kleif á hæstu bungur,
- hvort skin var eða skúr.
- Með öflugum æskuþrótti
- Það fylgdu fæstir honum,
- hann framdi hreystimet,
- var einn af Eyjasonum,
- sem aldrei bugast lét.
- Er fram hann hrinti fleyi,
- til fanga djúpið á,
- hann stýrði dag frá degi,
- því dirfsku brast hann eigi
- að sigla úfinn sjá.
- Það fylgdu fæstir honum,
- Hann beggja skauta byrinn
- og barning þekkti vel.
- Hann reyndi stormastyrinn
- og stóðst hin dimmu él.
- En nú er hetjan hnigin,
- sem harðast lék við dröfn.
- Hann varði drengskapsvígin
- og var til elli tiginn
- við stýrið heim í höfn.
- Hann beggja skauta byrinn