Jóhann Ólafur Tómasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. apríl 2021 kl. 20:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. apríl 2021 kl. 20:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Ólafur Tómasson skipstjóri fæddist 13. febr. 1893 í Nýborg og drukknaði 24. desember 1929.
Foreldrar hans voru Tómas Ólafsson, þá vinnumaður á Gjábakka, f. 1. mars 1869, og barnsmóðir hans Steinunn Ísaksdóttir frá Norðurgarði, þá í Nýborg, f. 22. október 1856, d. 31. janúar 1920.

Ólafur fylgdi móður sinni, var með henni á Vilborgarstöðum 1895, í Kuðungi 1901 og í Reykjvík 1910. Hann bjó með Guðrúnu Halldórsdóttur á Seljalandi 1915.
Hann fluttist utan, bjó á Spáni. Þar kvæntist hann þarlendri konu. Hann var skipstjóri á fiskiskipi, fórst þar með e/s Áslaugu frá Haugasundi 24. desember 1929.
I. Sambúðarkona hans var Guðrún Halldórsdóttir, f. 7. júní 1891 á Eyrarbakka, d. 21. janúar 1979.
Barn þeirra:
1. Baldvin Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður f. 13. júní 1915 í Lambhaga, d. 8. maí 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.