Jóhanna Sigríður Guðmundsdóttir (Mandal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. janúar 2016 kl. 11:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. janúar 2016 kl. 11:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Sigríður Guðmundsdóttir frá Mandal fæddist 7. desember 1870, d. 23. mars 1926 Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Árnason tómthúsmaður, sjómaður, meðhjálpari, síðar í Mandal, skírður 25. september 1827, d. 9. október 1879, og kona hans Guðný Árnadóttir, f. 27. desemeber 1834, d. 7. desember 1916.

Jóhanna Sigríður fór frá Hólshúsi til Vesturheims á vit móður sinnar 1883, 13 ára.
Þau Sigurður keyptu land og stunduðu landbúnað ásamt daglaunavinnu Sigurðar.
Jóhanna kynnti sér fæðingarfræði og var yfirsetukona.
Hjónin áttu heimili í Spanish Fork og 8 börn. Tvö þeirra urðu kennarar.

Maður hennar, (28. september 1891), var Sigurður Jónsson bónda í Akrakoti á Álftanesi Sigurðssonar.
Börn hér:
1. Wilford, kennari.
2. Thelma, píanóleikari.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.