Nicolaj Heinrich Thomsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. desember 2015 kl. 21:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. desember 2015 kl. 21:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Nikolai Heinrich Thomsen á Nicolaj Heinrich Thomsen)
Fara í flakk Fara í leit

Nikolai Heinrich Thomsen verslunarstjóri og síðar kaupmaður í Godthaab fæddist um 1844.
Faðir hans var Hans Edvard Thomsen kaupmaður í Godthaab, f. 1807, d. 27. apríl 1881.
Nikolai kom frá Kaupmannahöfn 1863, 19 ára factor að Godthaabsverslun.
Hann var í Frydendal 1865 við fæðingu Nikólínu.
Nikolai var verslunarstjóri í Godthaab með Jes Nicolai Thomsen 1868.
Hann fór af landi brott 1869.
Við andlát föður síns 1881 eignaðist Nikolai Godthaabsverslun og seldi hana Bryde kaupmanni í Garðsverslun 1894. Bryde lét rífa húsin og flutti þau til Víkur í Mýrdal til verslunarreksturs.

I. Barnsmóðir Nikolai að tveim börnum var Margrét Ólafsdóttir, þá í Godthaab.
Börn þeirra voru:
1. Nikulás Thomsen, (Nicolai Nicolaisson í brottflutningsskrá), f. 25. júní 1864. Hann var sendur til Kaupmannahafnar 1868, 4 ára.
2. Guðfinna Nikulásdóttir, (Guðfinna Nicolaisdóttir), f. 5. febrúar 1868. Hún var í Götu 1880, d. 8. apríl 1947.

II. Barnsmóðir Nikolais var Sigríður Ólafsdóttir í Brandshúsi, f. 17. ágúst 1830, d. 1. júlí 1886.
Barn þeirra var
3. Nikólína Thomsen, f. 12. mars 1865. Hún fór til Kaupmannahafnar 1884, til Vesturheims 1885.

III. Barnsmóðir hans var Kristín Eiríksdóttir, þá í Frydendal, síðar húsfreyja á Löndum.
Barn þeirra var
4. Jóhann Kristján Thomsen, f. 2. ágúst 1869, fór frá Kirkjubæ til Vesturheims 1880.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gamalt og nýtt. Útgefandi: Einar Sigurðsson. Vestmannaeyjum 1949-1952.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.