Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen
Anna Sigríður var dóttir hjónanna Árna Þórarinssonar og Steinunnar Oddsdóttur. Anna var snemma talin góður kvenkostur og hálfþrítug varð hún heitmey Jóhanns J. Johnsen á Vilborgarstöðum, sonar Guðfinnu Jónsdóttur Austmann húsfreyju.
Jóhann og Anna Sigríður hófu búskap sinn árið 1880 í gamla Frydendal. Synir þeirra voru: Gísli J. Johnsen, Kristinn Lárus Johnsen, Sigfús M. Johnsen, Guðni Hjörtur Johnsen og Árni Hálfdán Johnsen.
Í Frydendal ráku hjónin veitingasölu, útgerð og búskap.
Heimildir
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. 1969.