Sigurjón Sigurðsson (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. mars 2019 kl. 10:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. mars 2019 kl. 10:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurjón.

Sigurjón Sigurðsson fisksali frá Brekkuhúsi fæddist 6. mars 1890 í Hallgeirsey í Landeyjum og lést 8. júní 1959. Sigurjón fór til Vestmannaeyja 2 ára gamall með foreldrum sínum, Sigurði Sveinbjörnssyni og Sigurbjörgu Sigurðardóttur. Hann ólst upp á Fögruvöllum og síðar í Brekkuhúsi.

Fyrri kona Sigurjóns var Kristín Óladóttir og eignuðust þau átta börn. Seinni kona hans var Ingibjörg Högnadóttir og eignuðust þau tvö börn.
Sigurður hóf formennsku árið 1911 á Blíðu og svo keypti hann Þór með fleirum og var formaður á honum fram yfir 1916. Eftir það var Sigurjón formaður með hina ýmsu báta fram yfir 1940. Síðar var hann fisksali við Bárugötu.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Sigurjón Sigurðsson.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Myndir