Sigurður Ingimundarson (Draumbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. febrúar 2022 kl. 20:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. febrúar 2022 kl. 20:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Ingimundarson frá Draumbæ fæddist 12. maí 1877 og lést 8. júní 1933.
Foreldrar hans voru Ingimundur Sigurðsson bóndi í Draumbæ, f. 12. september 1835 í Neðri-Dal í Mýrdal, d. 12. mara 1894, og kona hans, Katrín Þorleifsdóttir, f. 1838 á Tjörnum í Stóradalssókn undir Eyjafjöllum, d. 13. febrúar 1901.

Sigurður var með foreldrum sínum í Draumbæ frá fæðingu, var leigjandi hjá þeim 1901.
Hann fluttist til Vesturheims 1902 frá Draumbæ, tók sér eftirnafnið Ingimundson.
Kona hans Vestra var Jónína Bernharðsdóttir, f. 13. apríl 1873, d. 1967, húsfreyja. Foreldrar hennar voru Bernharð Vigfússon bóndi á Fljótshólum í Flóa, f. 16. ágúst 1832 í Rútsstaðahjáleigu, d. 17. desember 1918 í Hlíð í Garðahreppi, Gull., og kona hans Róbjörg Oddsdóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1839 í Flóa, d. 14. mars 1889.
Börn þeirra hér:
1. Sylvia Sigurveig, f. um 1905.
2. Ágúst Björgvin, f. 12. ágúst 1908.
2. Ingimundur Karl, f. um 1908.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.