„Gíslný Jóhannsdóttir (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Gíslný Jóhannsdóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 39: | Lína 39: | ||
*Pers. | *Pers. | ||
*Valgeir Sigurðsson og fleiri. ''Landeyingabók, Austur-Landeyjar''. Útg. Austur-Landeyjahreppur 1999.}} | *Valgeir Sigurðsson og fleiri. ''Landeyingabók, Austur-Landeyjar''. Útg. Austur-Landeyjahreppur 1999.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur:Verkamenn]] | [[Flokkur:Verkamenn]] | ||
[[Flokkur: Húsfreyjur]] | [[Flokkur: Húsfreyjur]] |
Útgáfa síðunnar 8. júlí 2015 kl. 16:35
Gíslný Jóhannsdóttir húsfreyja á Eystri-Vesturhúsum og Kirkjubæjarbraut 4, en síðast í Reykjavík, fæddist 3. júlí 1911 í Efri-Vatnahjáleigu í A-Landeyjum og lézt 14. janúar 1993 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Jóhann Jónsson bóndi í Efri-Vatnahjáleigu (síðar nefnt Svanavatn) í A-Landeyjum, f. 22. okt. 1858, d. 3. maí 1929 og k.h. Jónína Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. sept. 1876, d. 11. nóvember 1935.
Þau Þorsteinn giftust 1. desember 1929 og höfðu búskap að Efri-Vatnahjáleigu 1929 til ársins 1934, er þau fluttu til Eyja. Þau bjuggu lengi að Eystri-Vesturhúsum, en á 6. áratugnum byggðu þau hús við Kirkjubæjarbraut 4 og bjuggu þar.
Gíslný fæddi eina stærstu fjölskyldu í Eyjum og vakti það athygli, hve mikill myndarskapur og eindrægni var hjá þeim hjónum í heimilishaldi og uppeldi barna sinna, þrátt fyrir þröng híbýli og takmörkuð efni.
Eiginmaður (1. desember 1929): Þorsteinn Ólafsson, f. 1896.
Börn þeirra Þorsteins:
- Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara.
- Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen,
- Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu,
- Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni,
- Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni,
- Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju,
- Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni,
- Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið,
- Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara,
- Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvufræðingi,
- Jónína iðnverkakona í Kópavegi, f. 23. september 1944, gift Guðjóni Þorbergssyni iðnverkamanni,
- Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur,
- Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara,
- Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
- Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda,
- Sigurbjörg húsfreyja á Fáskrúðsfirði, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni verkstjóra.
Myndir
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ólafía Þorsteinsdóttir, munnl. heimild.
- Pers.
- Valgeir Sigurðsson og fleiri. Landeyingabók, Austur-Landeyjar. Útg. Austur-Landeyjahreppur 1999.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.