„Þórunn Einarsdóttir (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Þórunn Einarsdóttir (Búastöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 13: | Lína 13: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur.}} | *Prestþjónustubækur.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Vinnukonur]] | [[Flokkur: Vinnukonur]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] |
Útgáfa síðunnar 29. júní 2015 kl. 15:23
Þórunn Einarsdóttir vinnukona á Búastöðum fæddist 11. júní 1829 og lést 3. desember 1898.
Foreldrar hennar voru Einar Ólafsson bóndi á Tjörnum u. Eyjafjöllum, f. 5. október 1810 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, d. 20. desember 1839 í Fuglavík á Reykjanesi, og Hómfríður Bjarnadóttir vinnukona á Tjörnum, f. 1803. Hún kom að Tjörnum úr Króki á Reykjanesi 1929, 26 ára.
Þórunn var með föður sínum og Drisjönu Þórarinsdóttur fósturmóður sinni á Tjörnum 1835. Þar voru einnig Ólafur Stefánsson afi Þórunnar, Guðný Auðunsdóttir kona Ólafs og fósturmóðir Einars, og Vilborg Erlendsdóttir móðir Ólafs, þá 85 ára.
Fjölskyldan fluttist að Fuglavík í Útskálasókn 1837.
Ólafur afi hennar varð úti í mars 1838. Faðir hennar og fósturmóðir létust bæði úr bólunni 1839.
1840 var Þórunn 10 ára sveitarbarn í Króki í Útskálasókn, 15 ára vikastúlka þar 1845.
Hún kom af Reykjanesi að Búastöðum 1849, var 20 ára vinnukona hjá Bjarna og Rakel frændfólki sínu þar 1850. Hún fór frá Presthúsum á Suðurnes 1852.
Hún fluttist frá Suðurnesjum í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum 1854.
Þórunn var ógift og barnlaus vinnukona í Ytri-Skógum þar við andlát 1898.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.