„Filippus Eyjólfsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Filippus Eyjólfsson (Búastöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 9: Lína 9:
*Prestþjónustubækur.
*Prestþjónustubækur.
*[[Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum]]. [[Jóhann Gunnar Ólafsson]]. [[Þorsteinn Johnson]] 1938-1939.}}
*[[Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum]]. [[Jóhann Gunnar Ólafsson]]. [[Þorsteinn Johnson]] 1938-1939.}}
 
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Bændur]]
[[Flokkur: Bændur]]
[[Flokkur: Kennarar]]
[[Flokkur: Kennarar]]

Núverandi breyting frá og með 29. júní 2015 kl. 13:36

Filippus Eyjólfsson bóndi, hreppstjóri, „barnaskólameistari“ kallaður, kennari, fæddist 1718 og lést 20. október 1791.
Hann var bóndi á Búastöðum 1762, Stakkagerði, og Miðhúsum 1790.
Filippus var óskólagenginn, en talinn vel að sér. Hann var því fenginn til að kenna börnum á heimili sínu við upphaf fyrstu tilrauna til skipulegrar barnakennslu í Eyjum um 1745. (sjá nánar Blik 1959).
Hans er líka minnst vegna ráns sem hann varð fyrir 1790 og mun hafa átt þátt í dauða hans ári síðar. Sjá Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, Miðhúsaránið.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.