„Sigþrúður Jónsdóttir (Þorlaugargerði)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 33: | Lína 33: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur.}} | *Prestþjónustubækur.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Húsfreyjur]] | [[Flokkur: Húsfreyjur]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 18. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 18. öld]] |
Útgáfa síðunnar 21. júní 2015 kl. 20:42
Sigþrúður Jónsdóttir húsfreyja í Þorlaugargerði fæddist 1785 í Réttarhúsi í Fljótshlíð og lést 8. mars 1860.
Faðir hennar var Jón Þorkelsson bóndi í Háakoti í Fljótshlíð 1801, á Grjótá þar 1816, í Norðurgarði hjá Jóni syni sínum 1823 og 1824, f. 1750 á Gjábakka í Eyjum, d. 22. nóvember 1824.
Móðir Sigþrúðar og kona Jóns Þorkelssonar var Þorgerður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1748 á Giljum í Hvolhreppi, d. 13. maí 1818.
Sigþrúður var með foreldrum sínum í Háakoti 1801 og á Grjótá 1816.
Hún var húsfreyja í Kastala 1821-1828 og húsfreyja í Þorlaugargerði 1828, 51 árs ekkja þar 1836 með Jóni Sveinssyni 40 ára fyrirvinnu, gift húsfreyja þar 1840, ekkja þar 1844-1846, gift húsfreyja 1846-1850, ekkja, húsfreyja, sem lifði af eignum sínum þar 1855.
Systir Sigþrúðar var Ingibjörg Jónsdóttir, sem var hjá ekkjunni Sigþrúði systur sinni 1845.
Bróðir þeirra var Jón Jónsson bóndi í Norðurgarði f. 1. mars 1791, hrapaði til bana úr Stórhöfða 21. ágúst 1851.
Sigþrúður var þrígift.
I. Fyrsti maður hennar var Sigurður Sigurðsson eldri, f. 1789, d. 5. febrúar 1835. Þau misstu öll börn sín úr ginklofa.
Börn þeirra hér:
1. Ingunn Sigurðardóttir, f. 9. mars 1821, d. 19. mars 1821 úr ginklofa.
2. Þorgerður Sigurðardóttir, f. 6. ágúst 1822, d. 13. ágúst 1822 úr ginklofa.
3. Ólöf Sigurðardóttir, f. 12. ágúst 1823, d. 5. nóvember 1834, 11 ára, úr ginklofa.
4. Jón Sigurðsson, f. 28. júlí 1825, d. 10. ágúst 1825 úr ginklofa.
5. Jón Sigurðsson, f. 2. nóvember 1827, d. 8. nóvember 1827 úr ginklofa.
II. Annar maður hennar, (20. september 1840), var Sigurður Sigurðsson yngri, f. 17. maí 1813, hrapaði til bana úr Stórhöfða 9. september 1844.
Þau Sigurður voru barnlaus.
III. Þriðji maður Sigþrúðar, (9. október 1846), var Ólafur Ólafsson bóndi í Þorlaugargerði, f. 28. janúar 1815, drukknaði við Landeyjasand 1. október 1850 með 7 öðrum. Þar fórust alls 6 karlar og tvær konur.
Þau Ólafur voru barnlaus.
IV. Barn Sigþrúðar fyrir hjónaband var
6. Sveinn Jónsson, f. 23. september 1815 á Grjótá í Fljótshlíð. „Hennar launsonur,“ segir á mt 1816.
Faðir hans var Jón Pétursson vinnumaður á Butru í Fljótshlíð.
Sveinn var hjá þeim Sigurði eldri í Þorlaugargerði 1828, 13 ára, en hrapaði til bana úr Hamrinum 28. júní 1829 .
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.