„Johannes Frahm verslunarstjóri“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Johannes Frahm verslunarstjóri“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 27. apríl 2015 kl. 11:01

Johannes Frahm verslunarstjóri í Garðinum, síðar bóndi í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, fæddist 2. ágúst 1800 í Danmörku og lést 24. október 1851 í Hólmahjáleigu.

Johannes fluttist til Eyja frá Kaupmannahöfn 1839 með konu sinni Mariane Dorothea og 4 börnum þeirra.
Hann var verslunarstjóri í Danskagarði 1839-1843 og bjó í Kornhól.
Hjónin skildu. Konan fór úr Eyjum með börnin 1841. Hann hætti störfum í Garðinum og fluttist að Bakka í Landeyjum, var þar húsmaður 1843-1846, en bjó með Katrínu í Hólmahjáleigu 1846-dd. 1851.

I. Kona hans, (skildu), var Mariane Dorothea Kaspersen Frahm, f. 10. mars 1805.
Börn þeirra, sem fylgdu þeim ekki til Eyja:
1. Carl Johannes Frahm, f. 1827, var á lífi 1853.
2. Hans Jochum Frahm, f. 1833, á lífi 1853. Börn fædd í Danmörku og komu til Eyja með foreldrum sínum:
3. Marie Dorothe Frahm, f. 19. maí 1829, var á lífi 1853.
4. Anne Emilie Frahm, f. 12. september 1830, var á lífi 1853.
5. Jörgen Frahm, f. 8. apríl 1836.
6. Peter Emil Frahm, f. 9. maí 1838, var á lífi 1853.
Barn fætt í Eyjum:
7. Jens Jacob Benedictsen, f. 2. júlí 1840, var á lífi 1853.

II. Bústýra hans og barnsmóðir var Katrín Halldórsdóttir, áður vinnukona í Kornhól, síðar húsfreyja í Hólmahjáleigu og á Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum, f. 13. mars 1816, drukknaði 14. apríl 1869.
Börn þeirra voru:
8. Þorgerður Jóhannesdóttir, f. 1. júlí 1847, d. 9. júní 1851.
9. Christian Jóhannesson, f. 27. október 1848, d. sama dag.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.