„Ólafur Jónsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Ólafur Jónsson''' bóndi í Stóra-Rimakoti í Holtum, síðast vinnumaður á Búastöðum, fæddist 25. nóvember 1897 og lést 21. maí 1859.<br> Foreldrar han...) |
m (Verndaði „Ólafur Jónsson (Búastöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 11. mars 2015 kl. 21:35
Ólafur Jónsson bóndi í Stóra-Rimakoti í Holtum, síðast vinnumaður á Búastöðum, fæddist 25. nóvember 1897 og lést 21. maí 1859.
Foreldrar hans voru Jón Bjarnason vinnumaður í Holtum og Halldóra Jónsdóttir, síðar húsfreyja í Unhól þar, f. 1775.
Ólafur var hálfbróðir, sammæddur, Oddnýjar Þórðardóttur húsfreyju á Vilborgarstöðum.
Ólafur og Guðrún voru vinnufólk í Háfshóli í Holtum 1835, bændur í Stóra-Rimakoti í Holtum 1837-1854, reyndar skráð húsfólk þar síðustu árin.
Guðrún lést 1855.
Ólafur fluttist úr Háfssókn að Þorlaugargerði1857, ekkill, var vinnumaður þar á því ári, en á Búastöðum 1858-dd. 1859.
I. Kona Ólafs, (1. júlí 1834), var Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1783, d. 12. maí 1855.
Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Holtamannabók III –Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.