„John Good Robert Charles Hansen“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''John Good Robert Charles Hansen''' fæddist 1804 í Kaupmannahöfn og lést 28. október 1836. Hann kom til Eyja frá Reykjavík með Þórönnu konuefni sitt 1826 og var versluna...) |
m (Verndaði „John Good Robert Charles Hansen“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 22. febrúar 2015 kl. 17:37
John Good Robert Charles Hansen fæddist 1804 í Kaupmannahöfn og lést 28. október 1836.
Hann kom til Eyja frá Reykjavík með Þórönnu konuefni sitt 1826 og var verslunarmaður í Kornhól. Þau Þóranna giftust 1827, þá búandi á Vesturhúsum. Þau eignuðust andvana barn þar 1828.
Þau bjuggu í Tómthúsi 1832 og 1833.
Hjónin fluttust til Keflavíkur og þar var John verslunarstjóri hjá Andr. og Smidt.
Hann lést 1836.
Kona hans, (26. júní 1827), var Þóranna Kristjana Hallsdóttir húsfreyja, f. 1801, d. 5. febrúar 1874.
Barn þeirra var
1. Andvana fætt stúlkubarn 22. október 1828.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.