„Elín Erlendsdóttir (Norðurgarði)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Elín Erlendsdóttir''' vinnukona í Norðurgarði fæddist 1792 á Felli í Suðursveit og lést 17. nóvember 1821 í Norðurgarði.<br> Foreldrar hennar voru ...) |
m (Verndaði „Elín Erlendsdóttir (Norðurgarði)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 14. febrúar 2015 kl. 20:34
Elín Erlendsdóttir vinnukona í Norðurgarði fæddist 1792 á Felli í Suðursveit og lést 17. nóvember 1821 í Norðurgarði.
Foreldrar hennar voru Erlendur Erlendsson bóndi, f. 1744, á lífi 1801, og kona hans Þórdís Jónsdóttir húsfreyja, f. 1749 á Holtum á Mýrum í A-Skaft., á lífi 1816 í Stóru-Mörk u. Eyjafjöllum.
Elín var 9 ára með foreldrum sínum á Hellum í Suðursveit 1801, var vinnukona í Efstakoti u. Eyjafjöllum 1816.
Hún fluttist frá Efstakoti að Nýjabæ 1820, var vinnukona þar til 1821, en var vinnukona í Norðurgarði við andlát í nóvember á því ári.
Elín var ógift og barnlaus í Eyjum.
Hún lést úr landfarsótt 1821.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.