„Filippus Eyjólfsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Filippus Eyjólfsson''' bóndi, hreppstjóri, „barnaskólameistari“ kallaður, kennari, fæddist 1718 og lést 20. október 1791.<br> Hann var bóndi á [[Búastaðir|Búast...) |
m (Verndaði „Filippus Eyjólfsson (Búastöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 17. janúar 2015 kl. 17:18
Filippus Eyjólfsson bóndi, hreppstjóri, „barnaskólameistari“ kallaður, kennari, fæddist 1718 og lést 20. október 1791.
Hann var bóndi á Búastöðum 1762, Stakkagerði, og Miðhúsum 1790.
Filippus var óskólagenginn, en talinn vel að sér. Hann var því fenginn til að kenna börnum á heimili sínu við upphaf fyrstu tilrauna til skipulegrar barnakennslu í Eyjum um 1745. (sjá nánar Blik 1959).
Hans er líka minnst vegna ráns sem hann varð fyrir 1790 og mun hafa átt þátt í dauða hans ári síðar. Sjá Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, Miðhúsaránið.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Blik 1959, Saga barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum, I. kafli, II. hluti.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum. Jóhann Gunnar Ólafsson. Þorsteinn Johnson 1938-1939.