„Bergljót Sigurðardóttir (Steinsstöðum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Bergljót Sigurðardóttir''' vinnukona í Fljótshlíð, síðar hjá Birni syni sínum á Steinsstöðum, fæddist 1750 og lést 21. nóvember 1819.<br> Faði...) |
m (Verndaði „Bergljót Sigurðardóttir (Steinsstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 11. ágúst 2014 kl. 17:23
Bergljót Sigurðardóttir vinnukona í Fljótshlíð, síðar hjá Birni syni sínum á Steinsstöðum, fæddist 1750 og lést 21. nóvember 1819.
Faðir hennar var Sigurður bóndi í Múlakoti í Fljótshlíð, síðar bóndi og umboðsmaður á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri, síðast bóndi á Surtsstöðum í Jökulsárhlíð í N-Múl., f. 1720, á lífi 1754, drukknaði í Lagarfljóti, Eyjólfsson „spaka‟, „mókolls‟, bónda og lögréttumanns (1724-1746) í Eyvindarmúla í Fljótshlíð, f. um 1689, d. 24. nóvember 1781, Guðmundssonar, og konu Eyjólfs, Hildar húsfreyju, f. 1697, Þorsteinsdóttur prests í Holti Oddssonar.
Móðir Bergljótar og kona Sigurðar í Múlakoti var Bóel húsfreyja, f. 1724, d. 26. febrúar 1797, Jensdóttir Wíum sýslumanns í Múlaþingi, (ættföður Wíum-ættar), f. (1690), d. 1740, Péturssonar Wíum, og konu Jens Wíum, Ingibjargar húsfreyju, f. 1690, á lífi 1762, Jónsdóttur.
Bergljót var föðursystir Bóelar Jensdóttur húsfreyju á Oddsstöðum, konu Jóns Þorleifssonar sýslumanns.
Bergljót var vinnukona á Kollabæ í Fljótshlíð, síðar í A-Landeyjum. Hún var hjá syni sínum á Steinsstöðum við manntal 1816.
I. Barnsfaðir Bergljótar var Björn í Kollabæ í Fljótshlíð.
Barn þeirra var
Björn Björnsson bóndi á Steinsstöðum, 16. mars 1789 í Kollabæ í Fljótshlíð, d. 20. júní 1821.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
- Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.