„Magnús Sigmundsson (Oddsstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Magnús Sigmundsson''' vinnumaður, sjómaður á Oddsstöðum, fæddist 1810 á Vestur-Holti u. Eyjafjöllum og drukknaði 18. nóvember 1842.<br> Foreldrar hans v...)
 
m (Verndaði „Magnús Sigmundsson (Oddsstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 16. júlí 2014 kl. 16:02

Magnús Sigmundsson vinnumaður, sjómaður á Oddsstöðum, fæddist 1810 á Vestur-Holti u. Eyjafjöllum og drukknaði 18. nóvember 1842.
Foreldrar hans voru Sigmundur Auðunsson bóndi á Harða-Velli u. Eyjafjöllum, f. 25. apríl 1777, og kona hans Guðlaug Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1777 í Gíslakoti þar, d. 18. nóvember 1863.

Magnús var með foreldrum sínum á Harða-Velli 1816 og í Syðri-Kvíhólma þar 1835.
Hann var vinnumaður á Hellnahóli þar 1840.
Magnús var sjómaður á Oddsstöðum 18. nóvember 1842, er hann drukknaði. Vigfús Bergsson bóndi og hreppstjóri í Stakkagerði og Guðmundur Sigurðsson bóndi á Oddsstöðum stóðu fyrir flutningi sauðfjár í Elliðaey í nóvember 1842, er juli, sem þeir voru með, hvolfdi. Þar drukknuðu 6 menn. (Sjá nánar: Blik 1958/Traustir ættliðir, fyrri hluti ).

I. Barnsmóðir Magnúsar var Halldóra Jónsdóttir vinnukona, síðar húsfreyja í Berjaneskoti u. Eyjafjöllum, f. 16. september 1814 í Hátúnum í Landbroti, d. 7. október 1867.
Barn þeirra var
1. Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 5. júlí 1840, d. 18. maí 1930 í Utah.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Blik 1958.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.